la peste

Hef aldrei viljað aðhyllast einstaklingshyggju eða aðrar einhverfar íhaldshyggjur sem kemur því náttúrulega ekkert við en ég hefi smitað betri helminginn að pestinni minni. En ég er orðin mjög þjóðleg og farin að sjá að pestar og veður eru langbestu umræðuefnin, um þetta er hægt að tala endalaust. Lýsa alls kyns tilbrigðum og ef hægt er að tengja pestina við veðrið þá verður það óhjákvæmilega krassandi umræðuefni. Eitthvað annað en verðbólga og stýrivextir, hver nennir að hlusta á þvaður um það...bankastarfsmenn kannski. Ég botna ekkert í þessum fréttum sem boða heimsenda í fjármálaheimum...þýðir þetta að ríka fólkið fær að blæða...tæpast. Augað mitt (svo ég fari nú út í eitthvað krassandi) er nú orðið fremur rautt í augnkróknum og bólgið. Vonandi held ég sjóninni þó ég fái ekki tíma hjá lækni fyrr en á morgun.

Ummæli

geturu sett inn mynd af ljóta auganu?
Móa sagði…
googlaðu bara quasimodo;-)
Tinna Kirsuber sagði…
Láttu þér og þínum batna sem fyrst, pestir í öllum formum og myndum eru djöfulsins handbendi. -Kona sem ég vinn með fékk únglíngabólu/kýli, bókstaflega inní annað augnlokið á sér um daginn. Þegar hún hófst svo handa við að lýsa í smáatriðum á kaffistofunni tæmingu kýlisins var mér allri lokið. Talandi um einstaklingshyggju!

Annars skal ég syngja með þér Susie Q anytime, anyday. Knús frá mér :)

Vinsælar færslur