Dóttirin er í pössun, kærastinn í útvarpinu og ég er búin að einbeita mér að námi í kannski fulla þrjá tíma. Hef lesið nokkra kafla samsvarandi ritgerðarefninu mínu og skrifa ein 700 orð nema nú virðist einbeitingin gengin til þurðar. Estrógenið farið að segja til sín, hugur minn leitar til þvotts sem er óþveginn, gólfs sem er ósópað og barnaherbergi sem þarfnast smá tiltektar. Hvar er hægt að fá lyf við þessum estrógenósóma!!!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
það er aðeins ef ég sest niður til að læra heima hjá mér að ég fæ þessa tilfinningu að allt sé skítugt og þá virkilega skítugt...hef ekki fundið neitt ráð nema að læra í skólanum, ekki heima :)




p.s. villtu vísa leiðina að AET í útvarpinu, gaman væri að leggja við hlustir.

idg
Móa sagði…
aet er einu sinni í viku hjá frank hall í helgarútgáfunni á laugardagseftirmiðdögum. Báðir með einkar ljúfar flauelisraddir.

mhg

Vinsælar færslur