Fara í aðalinnihald

Færslur

Sérvalið

lífið er tímaeyðsla

Ég er nú orðin mun þroskaðri en síðast þegar ég bloggaði enda orðin fjörutíu og eitthvað. Þess vegna hef ég eytt töluverðum tíma af þessum degi-sitjandi við tölvu með úfið hár að lesa gamlar bloggfærslur. Það er alveg ljóst að gæðin eru slík að þær munu á endanum rata á stafræna þjóðminjasafnið. Þar verður hægt að lesa gömul blogg og facebookmontfærslur frá árdögum fésbókar já og myspace maður--geggjað safn! Nú þar sem ég las eldgamla bloggið mitt fann ég mig knúna til þess að láta ganga í gegnum nýja mörkun, eins og er svo vinsælt í dag. Og lúkkið er já óviðjafnanlegt, pipiogpupu er nú á unglingsaldri og þarf að vera sæmilega nett, sa er det ikke fint!? TaaaaDaaaa...

Nýjustu færslur

ég er að verða 40 ára GÖMUL!

litla stjörnustríð hugans

femínistauppeldið

Me today before coffee!

Ég fór með Arnari til rakarans í dag

Eiga mýs möguleika á eftirlífi?

Pipiogpupu í nýjum búning.

pipiogpupu er tíu ára! TÍU ÁRA og eiginlega orðið úrelt!

búddistinn

ljóð eftir pabba í tilefni af 70 ára afmælinu hans.